Beiðni um heimild fyrir deildarstjórastöðu við Tónlistarskólann.

Málsnúmer 201110067

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 159. fundur - 09.11.2011

&Á síðasta fundi fræðsluráðs barst beiðni frá skólastjóra Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar um að fá heimild fyrir deildarstjórastöðu við skólann. Staðan á að rúmast innan fjárheimilda skólans. Skólastjóri lagði fram starfslýsingu.

 

Fræðsluráð samþykkir heimild fyrir deildarstjórastöðu til reynslu fram á vor 2013 við Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar, staðan rúmast innan fjárhagsramma. Samþykktin miðar við áramót.