Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 27, frá 15.02.2019.

Málsnúmer 1902020F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 311. fundur - 19.03.2019

  • .1 201802004 Undirbúningur framkvæmda- undirritun verksamnings við Kötlu ehf. um Lokastíg 3.
    Undir þessum lið komu á fundinn Jóni Ingi Sveinsson og Elías Þór Höskuldsson frá Kötlu ehf. og Ágúst Hafsteinsson, arkitekt, frá Form Ráðgjöf ehf.

    Á 26. fundi stjórnar þann 14. febrúar s.l. var frestað undirritun á verksamningi þar sem aðilar voru sammála um nokkrar lagfæringar á gögnum áður en verksamningur yrði undirritaður.
    Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 27 Meirihluti stjórnar undirritaði verksamning ásamt fylgigögnum við Kötlu ehf. um byggingu og fullnaðarfrágang leiguíbúða ásamt þjónusturými við Lokastíg 3 á Dalvík. Samningsfjárhæðin er kr. 195.380.500 með vsk. og er tengd við byggingavísitölu. Verklok eru 31. október 2019. Bókun fundar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
    Enginn tók til máls.