Félagsmálaráð - 222, frá 09.10.2018

Málsnúmer 1810003F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 306. fundur - 30.10.2018

Til afgreiðslu:
5. liður.
7. liður.
  • .1 201809146 Trúnaðarmál
    Trúnaðarmál 2201809146

    Bókað í trúnaðarmálabók
    Félagsmálaráð - 222 Bókað í trúnaðarmálabók.
  • .2 201809129 Trúnaðarmál
    Trúnaðarmál nr. 201809129

    Bókað í trúnaðarmálabók
    Félagsmálaráð - 222 Bókað í trúnaðarmálabók.
  • Tekið var fyrir erindi frá Velferðaráðuneytinu dags. 20.09.2018 um breytingu á löggjöf sem snýr að félagslegum leiguíbúðum sem og leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði. Félagsmálaráð - 222 Lagt fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Teknar voru fyrir yfirlit dags. 21.09.2018 frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti um lögmælt verkefni sveitarfélaga skv. 1.mgr.7.gr.sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Yfirlitinu er ætlað til leiðbeiningar fyrir sveitarfélög við stefnumótun og áætlanagerð ásamt því að auðvelda umræðu og yfirsýn yfir skyldur og hlutverk sveitarfélaga. Lögmælt verkefni sveitarfélaga er flokkuð eftir málaflokkum og hvort um lögskyld eða lögheimil verkefni er að ræða. Verkefni er lögskyld ef sveitarfélögum er skylt að rækja þau. Í lögheimilum verkefnum felst að sveitarfélag hefur svigrúm til þess að ákveða hvort verkefninu er sinnt. Lögskyld verkefni félagsþjónustu eru aðstoð við erlenda ríkisborgara, barnaverndarmál, félagsþjónusta sveitarfélaga, félagsleg ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, lögræðissviptingar og nauðungarvistanir, málefni aldraðra, málefni fatlaðs fólks, stuðningsþjónusta, túlkaþjónusta og málstefna, upplýsingagjöf vegna barna, vímuvarnir og aðstoða við einstaklinga í fíknivanda, sérstakur húsnæðisstuðningur. Félagsmálaráð - 222 Lagt fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Erindi barst frá Birtu dags. 04.10.2018 kaup á barmnælum til styrktar samtökunum og er óskað eftir að sveitarfélagið kaupi 1-2 nælur af félaginu. Samtökin Birta voru stofnuð 7.desember 2012 í Grafarvogskirkju. Tilgangur samtakanna og markmið er að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra. Einnig standa samtökin fyrir hvíldardögum fyrir foreldra/forráðamenn og fjölskyldur þeirra með endurnærandi hvíld að leiðarljósi. Samtökin eru vettvangur foreldra/forráðamanna barna (0-18 ára) og ungmenna (18-25 ára) sem látist hafa skyndilega til að hittast. Undir skyndilegt dauðsfall flokkast öll dauðsföll sem ekki gera boð á undan sér, hvort heldur sem orsökin eru líffræðileg, viðkomandi hafi fallið fyrir eigin hendi eða annarra, horfið eða látist af slysförum. Félagsmálaráð - 222 Félagsmálaráð telur að því sé ekki fært að veita umræddan styrk þar sem ekki er gert ráð fyrir slíkum kostnaði í fjárhagsáætlun. Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu félagsmálaráðs.
  • Tekið var fyrir erindi frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis dags. 28.september 2018 þar sem óskað er umsagnar til frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25.mál Félagsmálaráð - 222 Lagt fram til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Tekið var fyrir erindi frá Kvennaathvarfinu dags. 2.október 2018 þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2019. Kvennaathvarfið hefur frá stofnun þess verið skjól fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna ofbeldis. Einnig athvarf fyrir konur sem grunur leikur á að séu fórnarlömb mansals. Á síðasta ári dvöldu 149 konur og 103 börn í athvarfinu í allt að 11 mánuði. Einnig er konum boðið upp á viðtöl í athvarfinu og árlega nýta þá þjónustu 200-300 konur. Sveitarfélög hafa hingað til verið öflugir stuðningsaðilar kvenna og barna sem sækja ráðgjöf eða skjól til kvennaathvarfsins og í því skyni óskar Kvennaathvarfið eftir rekstarstyrk fyrir árið 2019 að fjárhæð kr. 100.000,- Félagsmálaráð - 222 Félagsmálaráð telur að því sé ekki fært að veita umræddan styrk þar sem ekki er gert ráð fyrir slíkum kostnaði í fjárhagsáætlun. Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu félagsmálaráðs.

    Enginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu eru því lagðir fram til kynningar.