Atvinnumála- og kynningarráð - 34, frá 02.05.2018

Málsnúmer 1804014F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 303. fundur - 15.05.2018

Til afgreiðslu:
1. liður.
2. liður.
3. liður, varðandi tillögu um að gengið verði til samninga við Hype.
  • Áframhaldandi vinna við atvinnustefnu Dalvíkurbyggðar, en unnið hefur verið að henni um nokkurt skeið og fjallað um hana á fundum ráðsins.

    Upplýsingafulltrúi leggur fyrir ráðið tillögu að kaflaskiptingu og uppbyggingu stefnunnar.

    Til umræðu.
    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 3 atkvæðum að ráðið verði stýrihópur atvinnustefnunnar og samþykkir einnig með 3 atkvæðum að haldinn verði opinn vinnufundur um aðgerðaáætlun stefnunnar haustið 2018. Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu atvinnumála- og kynningarráðs um stýrihóp vegna atvinnustefnu.
  • Á 865. fundi byggðaráðs var eftirfarandi bókað: ,,Tekið fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, dagsett þann 18, apríl 2018, sbr. rafpóstur, þar sem fram kemur að Hjörleifur fékk þann 1. febrúar s.l. kr. 1.000.000 styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands til að búa til hljóðleiðsögn (app) um Dalvíkurbyggð. Áætlaður kostnaður við verkið var um kr. 3.000.000. Erindi þessa bréf er að bjóða Dalvíkurbyggð þátttöku í verkefninu þannig að sveitarfélagið kosti tæknivinnu og eigi í staðinn appið og geti unnið með það áfram.

    Til umræðu ofangreint.

    Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar í atvinnumála- og kynningarráði með fyrirvara um að frekari upplýsingar og gögn berist, m.a. umsókn verkefnisins til Uppbyggingarsjóðs Norðurlands."

    Til umræðu.
    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum að hafna ofangreindu erindi. Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu atvinnumála- og kynningarráðs.
  • Á 33. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars bókað: ,,Í starfs- og fjárhagsáætlun fjármála- og stjórnsýslusviðs fyrir árið 2018 er gert ráð fyrir því að gera kynningarmyndband um Dalvíkurbyggð. Upplýsingafulltrúa er falið að útfæra nánar grunn fyrir kynningarmyndbandið ásamt því að leita tilboða hjá auglýsingastofum.

    Upplýsingafulltrúi kynnir fyrir ráðinu þau tilboð sem bárust vegna gerðar kynningarmyndbands.

    Upplýsingafulltrúa falið að vinna áfram að verkefninu."

    Til umræðu.



    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 3 atkvæðum að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun upp á 1.000.000 vegna þessa verkefnis. Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við Hype í samræmi við umræður á fundinum. Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu atvinnumála- og kynningarráðs um að gengið verði til samninga við Hype.
  • Á 33. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars bókað: ,,Dalvíkurbyggð á 20 ára afmæli á þessu ári en árið 1998 var sveitarfélagið sameinað úr þremur sveitarfélögum: Árskógshreppi, Svarfðardalshreppi og Dalvíkurbæ. Upplýsingafulltrúa falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum."

    Upplýsingafulltrúi kynnir þær tillögur sem bárust að afmælismerki Dalvíkurbyggðar.
    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Upplýsingafulltrúa falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Þann 4. maí næstkomandi rennur út frestur til að senda inn tillögur til Nýsköpunarverðlauna í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018. Að verðlaununum standa Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félag fostöðumanna ríkisstofnana, Samband íslenskra sveitarféalga, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannís. Markmiðið er að vekja athygli á því sem vel er gert og hvetja til meiri nýsköpunar í opinberri þjónustu og stjórnsýslu á Íslandi og eru stofnanir og sveitarfélög hvött til að tilnefna verkefni.

    Upplýsingafulltrúi upplýsir að ein tilnefning hafi verið send inn frá Dalvíkurbyggð en það er verkefnið um Ímynd Dalvíkurbyggðar.
    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og upplýsingafulltrúi leggja hér fram upplýsingar um þann fjölda mála sem tekin hafa verið fyrir hjá atvinnumála- og kynningarráði á kjörtímabilinu 2014-2018.

    Samtals hefur ráðið unnið að 96 málum af ýmsum toga á kjörtímabilinu.

    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Teknar fyrir fundargerðir AFE nr. 212, 213, 214 og 215.

    Atvinnumála- og kynningarráð - 34 Til kynningar. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

    Enginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu eru því lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.