Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 8, frá 26.04.2018

Málsnúmer 1804013F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 303. fundur - 15.05.2018

  • .1 201802004 Undirbúningur framkvæmda; endurskoðaðar tillögur að íbúðum
    Undir þessum lið komu á fund stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, og Ágúst Hafsteinsson, arkitekt hjá Form ráðgjöf ehf., kl. 11:30.

    Á 7. fundi stjórnar þann 9. apríl s.l. var m.a. eftirfarandi bókað:

    "Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður og ábendingar á fundinum. "

    Með fundarboði fylgdu endurskoðaðar tillögur að íbúðunum.

    Til umræðu ofangreint.

    Ágúst vék af fundi kl. 12:42.
    Eyrún vék af fundi kl. 12:53.

    Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 8 Stjórn leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að boða til kynningarfundar fimmtudaginn 4. maí n.k. kl. 20:00 í Ráðhúsi Dalvíkur, Upsa, með væntanlegum leigjendum, forráðamönnum og aðstandendum þeirra. Niðurstaða þessa fundar Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerðin lögð fram til kynningar í sveitarstjórn.