Landbúnaðarráð

112. fundur 10. ágúst 2017 kl. 10:00 - 12:00 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jón Þórarinsson Formaður
  • Freyr Antonsson Varaformaður
  • Gunnsteinn Þorgilsson Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir aðalmaður
  • Þorleifur Albert Reimarsson Varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Guðrún Erna Rudolfsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Þorleifur Albert Reimarsson.

1.Fjallskil og göngur haustið 2017.

Málsnúmer 201704061Vakta málsnúmer

Til umræðu innsent erindi frá Ólafi Jónssyni héraðsdýralækni dags. 24. júlí 2017 vegna rétta í Árskógsdeild.
Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar þakkar innsent erindi Ólafs.
Ráðið samþykkir að fjárréttin að Stóru-Hámundarstöðum verði skráð sem aukarétt samkvæmt gr. 26 í Fjallskilasamþykkt Eyjafjarðar og skal það tilkynnt til Eyþings og skráð í fjallskilabók eða gerðabók sveitarstjórnar.
Fjallskilanefnd Árskógsdeildar er falið að sjá til þess að aðstaða til að einangra sjúkt eða grunsamlegt fé sé til staðar í aðal- og aukarétt.
Samþykkt með fimm atkvæðum

2.Umsókn um leyfi til búfjárhalds fyrir fimm hænur.

Málsnúmer 201708009Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 24. júní 2017 óskar Elísa Rán Ingvarsdóttir eftir búfjárleyfi fyrir fimm hænur.
Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina.
Ráðið bendir á að hanar eru með öllu bannaðir í þéttbýli. Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um aðbúnað dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

3.Fjallskil 2017

Málsnúmer 201702044Vakta málsnúmer

Til umræðu fjallskil í Dalvíkurbyggð 2017.
Landbúnaðarráð vill að gefnu tilefni benda landeigendum á að nauðsynlegt er að smala öll heimalönd samhliða 1. og 2. göngum og gera skil á ókunnu fé sem þar kann að vera.
Samþykkt með fimm atkvæðum

4.Umsókn um undanþágur vegna hundahalds

Málsnúmer 201708010Vakta málsnúmer

Unnur E. Hafstað Ármannsdóttir óskar eftir undanþágu vegna hundahalds samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Ráðið samþykkir að veita tímabundið leyfi til þriggja mánaða fyrir þriðja hundin á þeim forsendum að heimili hundanna er utan aðalþéttbýlis á Dalvík.
Samþykkt með fimm atkvæðum

5.Frá Orkustofnun: Afrit af leyfi til leitar og rannsókna á málmum í Öxnadal, Hörgárdal og víðar á Tröllaskaga

Málsnúmer 201707023Vakta málsnúmer

Til umræðu afrit af leyfi Orkustofnunar til leitar og rannsókna á málmum í Öxnadal, Hörgárdal og víðar á Tröllaskaga.
Á 280. fundi umhverfisráð Dalvíkurtbyggðar þann 26. ágúst 2016 var tekin fyrir beiðni um umsögn vegna umsóknar Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á málmum í Hörgárdal, Öxnadal og nágrenni á Tröllaskaga. Umhverfisráð bókaði eftirfarandi
"Umhverfiráð Dalvíkurbyggðar leggur áherslu á að komi til framkvæmda í landi sveitarfélagsins fer ráðið fram að að umsóknaraðili sendi inn umsókn um framkvæmdarleyfi líkt og lög gera ráð fyrir.
Samþykkt með fimm atkvæðum."


Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar vill koma á framfæri athugasemdum við að ekki hafi verið leitað umsagna allra landeigenda áður en Orkustofnun veitti leyfi til leitar og rannsókna í Dalvíkurbyggð.
Landbúnaðarráð krefst þess að áður en farið verður af stað með rannsóknavinnu eða annarskonar framkvæmdir verði leitað leyfis viðkomandi landeiganda.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Nefndarmenn
  • Jón Þórarinsson Formaður
  • Freyr Antonsson Varaformaður
  • Gunnsteinn Þorgilsson Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir aðalmaður
  • Þorleifur Albert Reimarsson Varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs