Íþrótta- og æskulýðsráð

131. fundur 07. september 2021 kl. 15:30 - 17:40 í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
  • Þórunn Andrésdóttir formaður
  • Jóhann Már Kristinsson varaformaður
  • Gunnar Eiríksson aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Eydís Arna Hilmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varamaður einnig fundinn.

1.Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og æskulýðsráðs 2022

Málsnúmer 202109026Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir fyrstu drög að starfsáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðsmál. Íþrótta- og æskulýðsráð fór yfir helstu áherslur við gerð starfs-og fjárhagsáætlunar. Rætt var um forgangsröðun verkefna. Einnig var rætt um yfirfærslu á skráningarkerfi ÆskuRæktar í Sportabler og þá möguleika sem það hefur í för með sér fyrir íþróttafélögin og foreldra.

2.Ársskýrslur og ársreikningar félaga 2020

Málsnúmer 202102140Vakta málsnúmer

Íþróttafélög í Dalvíkurbyggð skila árlega inn ársreikningum samkvæmt samningi við Dalvíkurbyggð.
Íþrótta- og æskulýðsráð ræddi stöðu íþróttafélagana.

3.Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2021

Málsnúmer 202105001Vakta málsnúmer

Undir þessum lið var fundað með fulltrúum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð sem eru með virka starfsemi.
Eftirfarandi voru mættir


Felix Rafn Felixson: Meistaraflokkur í knattspyrnu (Dalvík/Reynir)
Erna Þórey Björnsdóttir: Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS
Marsibil Sigurðardóttir: Golfklúbburinn Hamar
Elín B. Unnarsdóttir: Sundfélagið Rán
Marinó Steinn Þorsteinsson og Helena Ragna Frímannsdóttir: Ungmennafélagið Reynir
Lilja Guðnadóttir: Hestamannafélagið Hringur
Hörður Finnbogason og Hjörleifur Einarsson: Skíðafélag Dalvíkur
Jón Haraldur Sölvason: Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður
Þá gerði Magni Óskarsson einnig grein fyrir stöðu fimleikadeildarinnar.

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir breytingum á ÆskuRækt. Nú hefur Nóri, sem er kerfið sem keyrir ÆskuRækt Dalvíkurbyggðar, sameinast Sportabler kerfinu. Í framhaldi munu allar skráningar í ÆskuRækt verða í gegnum Sportabler og Nóra kerfið lagt niður. Félögin munu verða sjálfstæðari og munu sjálf setja inn námskeið og fá beinni aðgang að upplýsingum sinna iðkanda.

Fulltrúar félagana fóru yfir rekstur og starfsemi félagana sérstaklega með það í huga að rýna stöðuna í tengslum við Covid undanfarið eitt og hálft ár.

Fundi slitið - kl. 17:40.

Nefndarmenn
  • Þórunn Andrésdóttir formaður
  • Jóhann Már Kristinsson varaformaður
  • Gunnar Eiríksson aðalmaður
  • Magni Þór Óskarsson aðalmaður
  • Eydís Arna Hilmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
  • Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi