Byggðaráð

828. fundur 01. ágúst 2017 kl. 12:00 - 12:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá

1.Greið leið ehf. lokaáfangi hlutafjáraukningar

Málsnúmer 201707042Vakta málsnúmer

Með rafbréfi dags. 25.júlí 2017 óskar Pétur Þór Jónasson fyrir hönd Greiðrar leiðar ehf. eftir því að hluthafar taki afstöðu til þess erindis og skrái sig fyrir auknu hlutafé í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum að skrá sig fyrir auknu hlutafé í Greið leið ehf samkvæmt rafbréfi dags 25.júlí 2017.

2.Kauptilboð Lokastíg 1

Málsnúmer 201707051Vakta málsnúmer

Tekið fyrir undirrituð kauptilboð, dagsett þann 24.07.2017 í eignirnar:
Lokastígur 1 íbúð 0102, að upphæð 9.400.000,-
Lokastígur 1 íbúð 0201, að upphæð 9.400.000,-
Lokastígur 2 íbúð 0301, að upphæð 9.400.000,-
Byggðarráð samþykkir með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að gera gagntilboð í eignirnar samkvæmt umræðum á fundi.

3.Umhverfisráð - 292

Málsnúmer 1707003FVakta málsnúmer

Til afgreiðslu:
Liður 6
Liður 7
Liður 8
Liður 9
Liður 10
Liður 11
Liður 12
  • Til kynningar ársreikningur og skýrsla stjórnar Björgunarsveitarinnar Dalvík fyrir 2016.
    Haukur Arnar vék af fundi undir þessum lið kl. 08:16
    Umhverfisráð - 292 Ráðið gerir ekki athugasemdir við innsend gögn og fagnar því góða starfi sem fram fer hjá sveitinni.
    Haukur Arnar kom aftur inn á fundinn kl. 08:25
  • Til kynningar stöðumat 1. jan- 1.júní 2017 Umhverfisráð - 292 Lagt fram til kynningar.
  • Til kynninga ný viðbragðsáætlun fyrir Múlagöng. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar fagnar framlagðri viðbragðsáætlun fyrir Múlagöng.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
  • Til kynningar fundargerð umsjónanefndar Friðlands Svarfdæla frá 1. júní 2017. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð felur sviðsstjóra að kanna næstu skref er varða lóðarstækkun við Sandskeið 31 samanber lið. 5 í fundargerð Friðlandnefnarinnar.
    Lagt fram til kynningar
  • Til umræðu verkefnalisti vegna framkvæmda við Friðland Svarfdæla 2017. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð fagnar þeim framkvæmdum sem þegar hafa farið fram og eru í farvatninu.
    Lagt fram til kynningar.
  • Með innsendu erindi dags. 12. júlí 2017 óskar Snorri Finnlaugsson fyrir hönd Hörgársveitar eftir leyfi til uppsetningar á sveitarfélagsskilti á bakhlið sveitarfélagsmerkis Dalvíkurbyggðar. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar felur sviðsstjóra að útfæra nýtt skilti í samráði við Hörgársveit samkvæmt umræðum á fundinum. Tekið skal fram að þær breytingar sem gerðar verða alfarið á kostnað Hörgársveitar.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • Með innsendu erindi dags. 29. júlí 2017 óskar Bjarni Óskarsson eftir leyfi til uppsetningar á skilti við Skíðadalsveg samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð - 292 Þar sem umrædd staðsetning er í Friðlandi Svarfdæla leggur ráðið til að valin verði staðsetning austan við Skíðadalsveg.
    Umhverfisráð samþykkir að veita leyfi á þeirri staðsetningu með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar á staðsetningu.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • Með innsendu erindi dags. 10. júlí 2017 óskar Elvar Reykjalín eftir leyfi til uppsetningar á heitum pottum í Sandvík, Hauganesi til reynslu. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir að veita umbeðið leyfi til reynslu í tvö ár, en bendir á að áður en leyfi verður veitt þarf að afla tilskilinna leyfa frá Heilbrigðiseftirlits Norðurlands og Umhverfisstofnunar.
    Ráðið bendir á að þær framkvæmdir sem umrætt leyfi tekur til skulu vera með öllu afturkræfar.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • Með innsendu erindi dags.28. júlí 2017 óskar Jón Geir Árnason eftir byggingarleyfi að Aðalbraut 14 samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • Með innsendu erindi dags. 28. júlí 2017 óskar Ingólfur Árni Eldjárn eftir byggingarleyfi í landi Gullbringu samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • Með innsendu erindi dags. 13. júlí 2017 óskar Ólafur Tage fyrir hönd lóðarhafa eftir byggingarleyfi við Hringtún 25 samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð óskar eftir að umbeðin byggingaráform verði grenndarkynnt eftirfarandi nágrönnum
    Hringtún 1,2,5 21,30 og 38.
    Miðtún 1 og 3.
    Steintún 2 og 4.
    Í framhaldi af því er sviðsstjóra falið að veita umbeðið leyfi ef athugasemdir gefa ekki tilefni til breytinga.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • 3.12 201609071 Styrkvegir 2017
    Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagfæringar á vegið inn að Sveinstaðaafrétt. Umhverfisráð - 292 Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
    Samþykkt með fimm atkvæðum.
    Niðurstaða þessa fundar Samþykkt Bókun fundar Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs
  • 3.13 201705116 Umferðarmerkingar_2017
    Til umræðu umferðamerkingar og umferðaröryggi í Dalvíkurbyggð.
    Á fundin mættu Erna Bára Hreinsdóttir og Heimir Gunnarsson frá Vegagerðinni,Felix Jósafatsson varðsstjóri hjá lögreglunni í Dalvíkurbyggð og Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri kl. 09:30.
    Umhverfisráð - 292 Ráðið þakkar fyrir gagnlegar umræður um þau verkefni sem fyrir liggja í umferðaröryggi á þjóðvegum í þéttbýli.
    Sviðsstjóra falið að afla tilboða frá ráðgjöfum um lokafrágang á umferðaröryggisáætlun.
    Erna Bára Hreinsdóttir,Heimir Gunnarsson,Felix Jósafatsson og Valur Þór Hilmarsson viku af fundi kl. 11:30.
    Bókun fundar



    Annað þarfnast ekki afgreiðslu, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu byggðaráðs eru því lagðir fram til kynningar í byggðaráði.

Fundi slitið - kl. 12:30.

Nefndarmenn
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
  • Kristján Guðmundsson Varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi