Sumarstörf hjá Vinnuskóla: Flokksstjórar

Sumarstörf hjá Vinnuskóla: Flokksstjórar

Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn í þrjár 100% stöður (möguleiki á lægra starfshlutfalli) flokksstjóra Vinnuskóla sumarið 2026. Starfstími er frá 20. maí til 15. ágúst 2026, en nákvæmur starfstími er þó umsemjanlegur.

Helstu verkefni:

  • Að stýra starfi ungmenna í Vinnuskóla.
  • Kenna ungmennum rétt vinnubrögð og samskipti á vinnustað.
  • Ábyrgð á tímaskráningu ungmenna.
  • Tryggja öryggi sitt og ungmenna við störf.
  • Vinna að fallegri og skemmtilegri Dalvíkurbyggð.
  • Vera leiðtogi og leiðbeinandi ungmenna.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með ungmennum æskileg, uppeldismenntun er kostur.
  • Aldurstakmark er 20 ára.
  • Stundvísi skilyrði.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni.
  • Áhugi og þekking á umhverfismálum er kostur.
  • Bílpróf.
  • Hreint sakavottorð.

Auk ofangreindra hæfniskrafna er leitað að lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag vinnuskólanemenda fyrir brjósti.Umsóknum skal fylgja ferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is).

Umsóknarfrestur er til 31. mars 2026.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Kr. Björgvinsdóttir garðyrkjufræðingur gkb@dalvikurbyggd.is.