Sumarstörf hjá Vinnuskóla: 17 ára ungmenni

Sumarstörf hjá Vinnuskóla: 17 ára ungmenni

Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf nemenda vinnuskóla fædd 2009 (17 ára). Öll ungmenni sem búa í Dalvíkurbyggð og eru fædd á árið 2009 geta nú sótt um vinnu við vinnuskóla Dalvíkurbyggðar, einnig ef ungmennið á a.m.k. annað foreldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð. Starfstími 17. ára ungmenna er í tíu vikur, frá júníbyrjun og fram í ágúst.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl nk. Sótt er um störfin í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar með rafrænum skilríkjum.

Vinnuskólinn er fyrst og fremst skóli þar sem nemendur/starfsmenn fá að stíga sín fyrstu skref í starfi undir leiðsögn og með stuðningi flokksstjóra og eldri starfsmanna Vinnuskólans. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á að nemendur virði samskiptareglur, sýni ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfi og umhverfi.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is).

Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðrún Kr. Björgvinsdóttir, garðyrkjufræðingur gkb@dalvikurbyggd.is