Sumarstarf í Íþróttamiðstöð: sundlaugarverðir

Sumarstarf í Íþróttamiðstöð: sundlaugarverðir

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir bæði kven- og karlkyns starfsmönnum í 100% vaktavinnustöður sundlaugavarðar. Um sumarafleysingar er að ræða frá byrjun júní fram í miðjan ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sundlaugagæsla
  • Klefavarsla
  • Afgreiðsla og samskipti við viðskiptavini Íþróttamiðstöðvar
  • Þrif mannvirkis

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
  • Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð íslenskukunnátta er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð

Auk ofangreindra hæfniskrafna er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2025

Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is).

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar (jonsi@dalvikurbyggd.is).

Sundlaug Dalvíkurbyggðar var tekin í notkun haustið 1994 og er hún afar vinsæl meðal ferðamanna. Þar má finna 12,5m x 25m sundlaug, heita potta, barna- og hvíldarlaug, vatnsrennibraut, vatnssvepp og eimbað. Við sundlaugina er íþróttahús sem var tekið í notkun árið 2010.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.