Sumarstarf hjá Söfnum og Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar
Óskum eftir öflugum einstaklingi til að slást í hóp með okkur og starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi í sumar. Um er ræða allt að 80% starfshlutfall auk möguleika á helgarvinnu. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok maí og geti unnið fram til ágústloka.
Starfsstöðvar sem um ræðir eru Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Héraðskjalasafn Svarfdæla, Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og Menningarhúsið Berg. Starfsmaður/starfsmenn öðlast þannig innsýn í heim ferðaþjónustunnar og grunnþætti safnastarfs í sveitafélaginu um leið.
Helstu verkefni:
- Almenn upplýsingagjöf til ferðamanna um afþreyingu, þjónustu og gönguleiðir í sveitarfélaginu.
- Þátttaka, utanumhald og aðkoma að skipulagningu ýmissa viðburða á vegum safnanna og Menningarhússins Bergi.
- Móttaka viðskiptavina á bókasafni og ýmis tilfallandi verkefni í Menningarhúsinu Bergi.
Hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun.
- Góð tungumálaþekking í máli og riti. Íslenska og enska, skilyrði.
- Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum.
- Rík þjónustulund.
- Frumkvæði og metnaður í starfi.
- Sveigjanleiki og vilji til að ganga í ólík verkefni og læra á ný forrit.
- Að geta unnið minnst einn laugardag í mánuði.
- Reynsla af safnastarfi og upplýsingagjöf er mikill kostur.
Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða samskiptafærni.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2025
Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is).
Allar frekari upplýsingar veitir Dominique Sigrúnardóttir, forstöðumaður safna og Menningarhússins Berg (afleysing) í síma 460-4931 eða á netfangið dominique@dalvikurbyggd.is