Stigskipting þjónustu

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að sú þjónusta sem barnið fær er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.

1. stig
Fyrsta stigið skiptist í tvö undirstig – grunnþjónustu og fyrsta stigs þjónustu. Grunn­þjónusta er aðgengileg öllum börnum í ungbarnavernd, leik-, grunn- og framhalds­skólum. Grunnþjónustan skiptir miklu máli fyrir farsæld barna og með því að grípa snemma inn í getum við komið í veg fyrir ýmiss konar erfiðleika síðar meir.

Dæmi um góða grunnþjónustu er að leggja áherslu á forvarnir, aðgerðir gegn einelti og ofbeldi og aðgerðir sem styðja við jákvæðan skólabrag.

Fyrsta stigs þjónustu tilheyrir einnig einstaklings­bundinn og snemm­tækur stuðningur sem hefur það að markmiði að styðja við farsæld barns. Hér er um að ræða þjónustu umfram grunn­þjónustu. Það er stuðningur við börn sem glíma við vægan vanda og stuðnings­­­aðgerðir sem koma í veg fyrir að vandinn aukist og vaxi. Þar má nefna sem dæmi náms­­örðugleika, hegðunar­vanda barns, afleiðingar eineltis og annarra áfalla eða minniháttar heilsufars vandi.
2. stig
Á öðru stigi er veittur einstaklings­bundinn og mark­vissari stuðningur en sá sem veittur er á fyrsta stigi. Til að tryggja farsæld barns eru úrræðin sérhæfðari og þjónustan fjölbreyttari. Þjónusta á öðru stigi er veitt þegar úrræði á fyrsta stigi duga ekki til eða hafa ekki borið til­ætlaðan árangur. Þörfin fyrir þjónustu á öðru stigi getur til dæmis verið tilkomin af heilsu­farslegum, félags­legum eða náms­legum að­stæðum. Má þar nefna sem dæmi sérdeildir eða starfs­brautir í skólum og ýmsa stuðningsþjónustu á vegum félags- og skólaþjónustu.
3. stig
Á þriðja stigi er veittur sérhæfðari stuðningur til að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin. Barn sem nýtur þjónustu á þessu stigi hefur að jafnaði flókinn og fjöl­þættan vanda og mikla umönnunarþörf. Barnið er þá í aðstæðum þar sem skortur á við­eigandi stuðningi og úrræðum getur haft alvarlegar afleiðingar og ógnað heilsu þess og þroska. Má þar nefna sem dæmi vistunarúrræði á grundvalli barnaverndarlaga, umfangsmikilnn og fjölþættan stuðning við fötluð börn og langvarandi sjúkrahúsdvöl barna.

Markmiðið er að sem flest börn fái viðeigandi þjónustu á 1. stigi og að þjónusta þess stigs sé það öflug að færri börn þurfi þá umfangs­miklu þjónustu sem á sér stað á 2. og 3. stigi.