Spurt og svarað

Er farsældin fyrir öll börn?
Stutta svarið er já, farsældin er fyrir öll börn á Íslandi og fjölskyldur þeirra.
Samþætting þjónustu í þágu farsældar barns er hins vegar fyrir þau sem þurfa einstaklingsmiðaðan stuðning sem krefst aðkomu ólíkra kerfa.

Hverju bæta farsældarlögin við þá þjónustu sem nú þegar er í boði?

 

Með tilkomu farsældarlaganna er lögð áhersla á að styrkja grunnþjónustu í nærumhverfi allra barna. Þau börn sem þurfa einstaklingsmiðaða þjónustu hafa nú aðgang að tengiliðum og málstjórum farsældar. Þeim er ætlað að leiða foreldra í gegnum þann frumskóg sem kerfið getur verið. Hlutverk þessara aðila er vel skilgreint og þeir eiga að hafa svigrúm og tíma til að sinna hlutverki sínu í þágu farsældar barns. 

 

 

Hvar get ég nálgast tengilið fyrir barnið mitt og fjölskylduna?

Tengiliður farsældar er stafsmaður ríkis og/eða sveitarfélags og er staðsettur á mismunandi stöðum eftir æviskeiði barns.
Frá meðgöngu að leikskólagöngu barns er tengiliður farsældar starfsmaður í heilsugæslu.
Á leik-, grunn- og framhaldsskólaaldri er tengiliður farsældar starfsmaður skóla.
Börn sem á einhvern hátt falla á milli ofangreindra þjónustukerfa hafa aðgang að tengilið hjá félagsþjónustu sveitarfélags.

 

Hvaða úrræði er hægt að nýta í samþættri þjónustu?

Sveitarfélögin vinna nú að úrræðalistum sem verða aðgengilegir foreldrum og eftir atvikum börnum sem og tengiliðum farsældar. Þar er útlistað hvaða úrræði eru til staðar í nærumhverfi barna.Einnig eru úrræði á vegum ríkis, s.s. úrræði innan heilbrigðiskerfis, sem hægt er að nýta þegar það á við.
Þá er hægt að benda á úrræði ávegum hagsmunasamtaka og einkaaðila en ekki er til staðar tæmandi listi þeirra fjölmörgu úrræða sem í boði eru

Eiga öll mál þar sem barn og fjölskylda þurfa aðstoð að vera samþætt?
Stutta svarið er nei, það þurfa ekki öll mál að vera samþætt svo að barn geti fengið aðstoð og stuðning.

 Í einhverjum tilvikum nægir stuðningur á grunnstigi sem öll börn hafa aðgang að. Þegar börn þurfa frekari aðstoð og metið er sem svo að samþætting þjónustu sé í þágu farsældar barns er hægt að leggja fram beiðni þess efnis.

Þurfa báðir foreldrar að undirrita beiðni um miðlun upplýsinga og/eða samþættingu svo að samþætting geti hafist?

 Í farsældarlöggjöfinni er ekki að finna einfalt svar við þessari spurningu. Þetta verður að skoða í samhengi við önnur lög þar sem mál barnsins fellur undir, t.d. barnalög, barnaverndarlög og lög um sjúklinga. Sumt miðast við báða forelda og annað miðast við lögheimilisforeldra. Ávallt skal hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi.

Það er starfandi teymi í kringum barnið mitt sem gengur vel. Þarf að óska eftir samþættri þjónustu til viðbótar?
Nei, alls ekki. Ef það er starfrækt teymi í kringum barn og teymisvinnan og samstarfið gengur vel er óþarfi að óska eftir samþættingu þjónustu. Ef það koma upp hnökrar í samstarfinu og erfiðleikar með samvinnu á milli ólíkra kerfa getur hins vegar verið tilefni til að skoða hvort samþætting þjónustu sé í þágu farsældar barns.

 

Hvað gerist ef barnið mitt þarf einstaklingsmiðaðan stuðning en ég vil ekki þiggja samþætta þjónustu?

Samþætting þjónustu er tilboð til barna og fjölskyldna þeirra en ef foreldrar kjósa geta þeir sjálfir sótt þjónustuna en þá er hún ekki samþætt.

Lögin koma ekki í staðinn fyrir þjónustu sem þegar ber að veita, heldur eru þau ætluð sem viðbót til að greiða götu barna og foreldra, tryggja heildarsýn lykilaðila og til þess að þeir sem veita þjónustu vinni saman að hagsmunum barnsins.

Hver er munurinn á beiðni um miðlun upplýsinga og beiðni um samþættingu þjónustu?

Beiðni um miðlun upplýsinga:
Það er eyðublað sem foreldri og/eða barn fyllir út sem heimilar þjónustuveitanda eða þeim sem veitir almenna þjónustu í þágu farsældar barns að taka saman upplýsingar um aðstæður barns og miðla þeim til tengiliðar. Eyðublaðið heimilar eingöngu þessa tilteknu miðlun til þessa tiltekna tengiliðar. Tengiliður hefur ekki heimild til að hafa samband við aðra en foreldra og/eða barn þegar hann hefur móttekið upplýsingarnar.

Beiðni um samþættingu þjónustu:
Það er eyðublað sem foreldri og/eða barn fyllir út þar sem óskað er eftir að þjónusta við barn verði samþætt. Beiðnin heimilar tengiliðum, málstjórum, þjónustuveitendum og þeim sem veita þjónustu í þágu farsældar barns að vinna upplýsingar um barn til að tryggja því skipulagða og samfellda þjónustu.