Eigna- og framkvæmdadeild: almennur starfsmaður
Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða til sín öflugan einstakling í 100% stöðu hjá Eigna- og framkvæmdadeild. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar um starfið/deildina:
Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar sér um viðhald á eignum sveitarfélagsins og hefur líka umsjón með nýframkvæmdum. Um er að ræða viðhald og framkvæmdir á sviði fasteigna, gatna, gangstétta, stíga og á opnum svæðum og leiksvæðum. Starfsmenn deildarinnar vinna náið með stjórnendum stofnana og öðrum starfsmönnum Framkvæmdasviðs. Starfið krefst líkamlegrar áreynslu og úthalds og er unnið bæði inni og úti.
Eigna – og framkvæmadeild er deild innan Framkvæmdasviðs sveitarfélagsins. Næsti yfirmaður er deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar.
Starfssvið og helstu verkefni:
- Þjónusta og viðhald fasteigna og annarra eigna sveitarfélagsins.
- Umhirða og viðhald opinna svæða.
- Viðhald og umhirða á tækjum og búnaði Eigna- og framkvæmdadeildar.
- Viðhald og umhirða á götum, gangstéttum, stígum og götugögnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þekking og reynsla af sambærilegum störfum er nauðsynleg.
- Menntun sem nýtist í starfi, iðnmenntun er kostur.
- Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
- Vinnuvélaréttindi kostur.
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfni og nákvæmni.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Frekari upplýsingar um launakjör veitir launafulltrui@dalvikurbyggd.is
Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsækjendum. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Nánari upplýsingar veitir næsti yfirmaður, Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri EF-deildar (helga@dalvikurbyggd.is)
Umsóknarfrestur er til og með 15.2.2026