Dalvíkurskóli: umsjónarkennari/dönskukennari á unglingastigi

Dalvíkurskóli: umsjónarkennari/dönskukennari á unglingastigi

Dalvíkurskóli auglýsir eftir umsjónarkennara/dönskukennara á unglingastigi (100% starfshlutfall) frá og með 1. ágúst 2026. Næsti yfirmaður er deildarstjóri eldra stigs.

Helstu verkefni:

  • Vinnur samkvæmt skólanámskrá, kennsluáætlunum.
  • Undirbýr kennsluáætlanir og endurmat.
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
  • Umsjón með bekk og heimastofu.
  • Dönskukennsla á eldra stigi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
  • Sérhæfð hæfni í dönskukennslu.
  • Starfsreynsla á grunnskólastigi í dönsku.
  • Hugmyndaríki, jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskipum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Þarf að geta unnið í teymi með öðrum.
  • Áhugi á notkun tækni í skólastarfi.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 19. maí 2026

Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ fyrir Félag grunnskólakennara. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is). Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri, sími 460 4980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.

Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn er teymiskennsluskóli, vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans.