Dalvíkurskóli: Handmenntakennari
Dalvíkurskóli auglýsir eftir handmenntakennara (52% starfshlutfall) frá og með 1. ágúst 2026. Um tímabundna ráðningu er að ræða til eins árs. Næsti yfirmaður er deildarstjóri yngra stigs.
Helstu verkefni:
- Kennir handmennt í 1.-6. bekk.
- Vinnur samkvæmt skólanámskrá, kennsluáætlunum.
- Undirbýr kennsluáætlanir og endurmat.
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
- Foreldrasamstarf.
- Umsjón með heimastofu.
- Teymiskennsla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Sérhæfð hæfni í kennslu barna á yngsta- og miðstigi.
- Reynsla á sviði handmenntar æskileg.
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
- Góð færni í mannlegum samskipum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Þarf að geta unnið í teymi með öðrum.
- Áhugi á notkun tækni í skólastarfi.
- Hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2026
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ fyrir Félag grunnskólakennara. Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar (launafulltrui@dalvikurbyggd.is). Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri, sími 460 4980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.
Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn er teymiskennsluskóli, vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans.