Fornleifafræðingar sem voru að störfum í Svarfaðardal og Hörgárdal í sumar boða komu sína til Dalvíkur og vilja bjóða öllum áhugasömum að hitta sig í Menningarhúsinu Bergi þar sem þau hyggjast segja frá störfum sínum síðasta sumar og hvert er stefnt í framhaldinu.
Farið verður yfir megin markmið verkefnisins í heild og framvindu þess á næstu árum.
Farið verður ítarlega í rannsóknir, verkefni og niðurstöður sumarsins og hvernig aðkoma fornleifafræðinga að verkefninu skiptist.
Að lokum gefst gestum kostur á að spyrja spurninga og koma áleiðis eigin fróðleik!
Kaffi Berg verður með opið fyrir sölu á léttum veitingum og hvetjum við auðvitað áhugasama að halda samtalinu áfram að formlegum erindum loknum