Sölvi Tryggvason - Á eigin skinni

Bókasafn Dalvíkurbyggðar í samstarfi við Heilsueflandi Dalvíkurbyggð, auglýsir opinn fyrirlestur laugardaginn 27. aprílNánari tímasetning verður auglýst síðar.

Fyrirlesarinn er engin annar en Sölvi Tryggvason, en hann gaf nýverið út bókina Á Eigin Skinni. Sölvi hefur lengi verið þekktur sem virkur fjölmiðlamaður hér á landi, en fyrir áratug hrundi heilsa hans bæði líkamlega og andlega. Eftir þrautagöngu milli lækna og annarra sérfræðinga, endalausar rannsóknir og lyfjameðferðir án þess að hann fengi bót meina sinna, ákvað hann að taka málin í eigin hendur. Síðan hefur Sölvi fetað allar mögulegar slóðir í leit að betri heilsu og auknum lífsgæðum. Á þeirri vegferð hefur hann gert nær endalausar tilraunir á sjálfum sér viðvíkjandi mataræði og hreyfingu, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðslu, öndunaræfingar, tengingu við náttúru og ótalmargt annað sem snýr að heilsu.

Bókin fjallar um leið Sölva til heilsu á ný, þær fjölbreytilegu tilraunir sem hann gerði á eigin skinni og niðurstöðurnar sem hann komst að. Þessi yfirgripsmikla bók á erindi við alla, jafnt þá sem glíma við einkenni lífsstílssjúkdóma og vilja snúa við blaðinu og hina sem ástunda heilbrigt líferni.


Við hvetjum alla til að mæta - Aðgangur er ókeypis!

 

Bókasafn DalvíkurbyggðarHeilsueflandi Dalvíkurbyggð