Páskaföndur með Daley og bókasafninu

Páskaföndur með Daley og bókasafninu

Daley hönnun verður, í samstarfi við Bókasafn Dalvíkurbyggðar, með páskaföndur fyrir alla fjölskylduna í Bergi - föstudaginn 26. mars milli kl. 14.00-17.00.

Eitthvað fyrir alla - líka páskamyndir að lita fyrir þessi allra minnstu :)

Hægt verður að kaupa ómálaðar páskavörur og mála á staðnum auk þess sem hægt verður að kaupa tilbúið páskaskraut fyrir þá sem það kjósa.

Að sjálfsögðu verður ýtrustu sóttvarna gætt og við minnum á grímuskyldu á safninu fyrir þá sem eru fæddir fyrir árið 2005.

50 manna fjöldatakmörkun!

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.