Helga Bryndís og Gunnar Kvaran - Klassík í Bergi

Helga Bryndís og Gunnar Kvaran - Klassík í Bergi

Klassík í Bergi 2017- 2018  

Á þessum fyrstu tónleikum seríunnar spila saman Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari, meðal annars tólf tilbrigði eftir Beethoven um stef úr óratóríunni Judas Maccabäus eftir G.F. Händel og sjö tilbrigði um stef úr óperunni Töfraflautan eftir W.A. Mozart. Þá er enn eitt verk óupptalið, það er Sónata ópus 40 í d-moll fyrir selló og píanó eftir Sjostakovits. Helga Bryndís segir mikla upplifun fyrir sig að spila það með Gunnari því hann þekki það út og inn og hafi spilað það margoft. „Ég smitast af andagift Gunnars og flýg með. Það er eins og að drekka vín sem hefur þroskast á besta hátt,“ segir hún og upplýsir að hún hafi aldrei spilað með Gunnari áður en nú virðist hafa verið rétti tíminn því við náðum svo vel saman. Ég hef dáðst að honum sem hljóðfæraleikara og listamanni alveg frá því ég var nemandi og það er heiður að spila með honum svona skemmtilegt prógram.“

Miðasala við innganginn. Verð 2.900 og frítt fyrir 18 ára og yngri.

Helga Bryndís Magnúsdóttir lauk einleikara-og kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði síðan framhaldsnám við Konservatoríið í Vínarborg og Sibeliusarakademíuna í Helsinki. Hún hefur leikið fjölmörg einleiksprógrömm, m.a. í Salnum í Kópavogi, á Listahátíð í Reykjavík og um allt land. Hún hefur auk þess leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinf.hlj.sv. áhugamanna, píanókonserta eftir Ravel, Poulenc, Brahms, Gershwin og Bach. Helga Bryndís lék einleik í beinni sjónvarpsútsendingu á Norðurlöndunum í spurningaþættinum Kontrapunkti. Hún hefur leikið mikinn fjölda tónleika með fremstu söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins og hljóðritað marga geisladiska í samstarfi við aðra. Hún er meðlimur í Caput hópnum, og hefur leikið með honum víða erlendis og hér heimavið auk þess að hafa leikið inn á geisladiska með þeim. Hún hefur einnig gert upptökur fyrir sjónvarp og útvarp, bæði ein og með öðrum. Hún starfar sem píanóleikari við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólana í Kópavogi, og Reykjanesbæ.

Gunnar Kvaran er fæddur í Reykjavík árið 1944. Hann hóf tónlistarnám í Barnamúsíkskólanum þar sem kennari hans var Dr. Heinz Edelstein. Síðar stundaði hann nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Einari Vigfússyni og við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn þar sem kennari hans var prófessor Erling Blöndal-Bengtsson. Framhaldsnám stundaði hann hjá prófessor Reine Flachot í Basel.  Gunnar Kvaran hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík í Þrjátíu ár og var ráðinn  prófessor við  tónlistardeild Listaháskóla Íslands haustið 2005 . Hann stundar auk fastra starfa umfangsmikið tónleikahald bæði heima og erlendis.  Hann hefur haldið einleiks og kammertónleika í mörgum Evrópulöndum, auk Bandaríkjanna og Kanada og m.a. komið fram í Wigmore Hall í London, Carnegie Hall í New York, í Beethoven Haus í Bonn og Mendelsohn Haus í Leipzig. Hann er meðlimur í kammerópnum Tríó Reykjavíkur. Gunnar hefur margsinnis leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, komið fram í útvarpi og sjónvarpi og allmargar hljómplötur og hljómdiskar hafa verið gefnir út með leik hans. Hann hlaut verðlaun úr sjóði Dr.Gunnars Thoroddsens árið 1990 fyrir tónlistarstörf og var valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 1996. Mörg undanfarin sumur hefur hann verið gestur á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í Bandaríkjunum. Sumrin 1999 og 2000 var honum einnig boðið að kenna og leika á tónlistarhátíð í Grikklandi.  Í desember 2001 var honum boðið að koma fram ásamt Hauki Guðlaugssyni organista á sérstökum hátíðartónleikun í Vendrell á Spáni, fæðingarbæ Pablo Casals. Þann dag voru 125 ár liðin frá fæðingu meistarans. Gunnar var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu í júní 2006.