Dalvíkurhöfn - Umsókn um byggingaleyfi - niðurrif skúrs

Málsnúmer 202504101

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 3. fundur - 30.04.2025

Erindi dagsett 29. apríl 2025 þar sem Björgvin Páll Hauksson f.h. Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar sækir um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á skúr á lóð nr. 1 við Sjávarbraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.