Stórhólstjörn - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 202501042

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 30. fundur - 15.01.2025

Erindi dagsett 9.janúar 2025 þar sem Freyr Antonsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám á stíg sem liggur að dæluhúsi við Stórhólstjörn.
Ætlunin er að nýta umræddan gám til geymslu á skautabúnaði fyrir almenning.
Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar afgreiðslu þess til byggingarfulltrúa.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að finna hentuga framtíðarstaðsetningu fyrir geymslu á skautabúnaði í samvinnu við hönnuð deiliskipulagsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Afgreiðslufundur byggingafulltrúa - 1. fundur - 30.01.2025

Erindi dagsett 9.janúar 2025 þar sem Freyr Antonsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám á stíg sem liggur að dæluhúsi við Stórhólstjörn. Ætlunin er að nýta umræddan gám til geymslu á skautabúnaði fyrir almenning. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsráð samþykkir erindið á fundi 15. janúar 2025 og vísar afgreiðslu þess til byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.