Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf.; Auglýsing eftir framboðum í stjórn lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 202401142

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1095. fundur - 08.02.2024

Tekið fyrir erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dagsett þann 30. janúar sl., þar sem fram kemur að kjörnefnd óskar eftir tilnefningum og/eða framboði til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga. Kjörnefnd óskar eftir að sveitarstjórnarmönnum sé kynnt innihald bréfs þessa eins fljótt og unnt er til að áhugasömum gefist tími til að skila inn tilnefningum og/eða framboðum, í síðasta lagi kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 21. febrúar nk.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda ofangreint erindi á sveitarstjórn.