Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn tækifærisleyfi f. réttardansleik

Málsnúmer 202308019

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1077. fundur - 24.08.2023

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 9. ágúst sl., þar sem óskað er umsagnar um umsókn um tækifærisleyfi fyrir réttardansleik í Samkomuhúsinu Höfða frá Ungmennafélaginu Atla. Viðburðurinn verður 10. september nk.

Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn með fyrirvara um umsagnir slökkviliðsstjóra og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.