Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsagnarbeiðni. Rekstrarleyfi gistingar. Manifesto ehf.

Málsnúmer 202307067

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1077. fundur - 24.08.2023

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 24. júlí sl.,þar sem óskað er umsagnar um umsókn um rekstrarleyfi frá Manifesto ehf. vegna leyfis til reksturs gististaðar í flokki II - C minna gistiheimili í Höfn við Karlsrauðatorg 4 á Dalvik.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn með fyrirvara um umsagnir slökkviliðsstjóra og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.