Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Mögulegar breytingar vegna óleyfisbúsetu

Málsnúmer 202304122

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1066. fundur - 27.04.2023

Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 24. apríl sl., þar sem Sambandið vekur athygli sveitarfélaga á áformaskjali starfshóps á vegum innviðaráðherra sem birt hefur verið í samráðgsgátt stjórnvalda. Um er að ræða fyrirhugaða breytingu m.a. á lögheimilslögum í tengslum við óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði. Frestur til að koma með sjónarmið er til og með 28. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.