Frá SSNE; Námskeið fyrir sveitarstjórnarfólk, Samband íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 202303051

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1062. fundur - 16.03.2023

Tekinn fyrir rafpóstur frá SSNE, dagsettur þann 8. mars sl., þar sem fram kemur að Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir námskeiði fyrir aðal- og varamenn í sveitarstjórnum landsins og ætlar að halda vinnustofu á Akureyri þriðjudaginn 11. apríl næstkomandi kl. 10-16. Um er að ræða sjálfstætt framhalds sveitarstjórnarskólans.

Byggðaráð hvetur aðalmenn og varamenn í sveitarstjórn að nýta sér þetta tækifæri.