Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2023

Málsnúmer 202302022

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 146. fundur - 07.02.2023

Fráfarandi íþrótta- og æskulýðsráð hvatti nýtt ráð til að taka upp umræðuna um það hvort fundur með íþróttfélögunum sé betri að hausti eða vori.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að vorfundur ráðsins verði haldinn 2. maí kl. 16:30. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að kanna hvaða málefni íþróttafélögin vilja ræða.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 147. fundur - 07.03.2023

Búið er að óska eftir tillögum frá íþróttafélögunum um fundarefni. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi mun verða með kynningu og umræðu um Sportabler á vorfundinum. Nánar til umræðu á næsta fundi ráðsins.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 148. fundur - 04.04.2023

Fundurinn verður haldinn 2. maí 2023 kl. 16:30.
Kristín Kjartansdóttir fór af fundinum kl. 9:25

Íþrótta- og æskulýðsráð - 149. fundur - 02.05.2023

Undir þessum lið var fundað með fulltrúum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð sem eru með virka starfsemi. Fulltrúarnir mættu á fundinn kl. 16:30 og sátu undir þessum lið til fundarloka.
Eftirfarandi voru mættir
Elín B. Unnarsdóttir: Sundfélagið Rán
Kristján Ólafsson: UMFS
Erna Þórey Björnsdóttir: Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS
Sævaldur Jens: Hestamannafélagið Hringur
Þórir Guðmundur Áskelsson: Hestamannafélagið Hringur
Ingvar Örn Sigurbjörnsson: meistaraflokkur UMFS
Bjarni Jóhann Valdimarsson: Golfklúbburinn Hamar
Óskar Óskarsson: Skíðafélag Dalvíkur
Hanna Kristín Gunnarsdóttir: Skíðafélag Dalvíkur
Sigurlaug Hanna Hafliðadóttir: Rimar
Íris Hauksdóttir: Fimleikadeild UMFS

Gísli Bjarnason, gerði grein fyrir samþættingu vegna farsældar barna og umræður fóru fram.
Gísli Rúnar fór yfir Sportabler og umræður fóru fram m.a. um hvor ekki væri hægt að semja við aðra um notkun á greiðslukortum. Einnig hvort verið sé að tvígreiða fyrir þjónustu og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að kanna það.
Þá var rætt um æfingagjöld. Hvort þau séu í takt við það sem þarf að vera. Einnig var rætt um asfslætti af iðkendagjöldum til stjórnamanna félaga.
Íþrótta- og ætkulýðsfulltrúi mun hafa milligöngu við félögin að reyna að samþætta æfingar eins mikið og kostur er þannig að það verði sem minnstir árekstrar.
Þá voru aðilar sáttir á það að sveitarfélagið standi meira fyrir almennum fræðslum sem öll félögin geta nýtt sér. Slíkt verður þá sett inn í samninga við félögin.