Yfirlit siglingaverndar 2023

Málsnúmer 202301054

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 122. fundur - 01.03.2023

Tekið fyrir drög að yfirliti siglingaverndar 2023 frá Samgöngustofu sem barst með tölvupósti þann 11. janúar 2023. Óskað er eftir því að farið sé yfir drögin og athugasemdum skilað inn.
Veitu- og hafnaráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Sveitarstjórn - 357. fundur - 21.03.2023

Á 122. fundi veitu- og hafnaráðs þann 1. mars 2023 var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir drög að yfirliti siglingaverndar 2023 frá Samgöngustofu sem bárust með tölvupósti þann 11. janúar 2023. Óskað er eftir því að farið sé yfir drögin og athugasemdum skilað inn.Niðurstaða:Veitu- og hafnaráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda bókun veitu- og hafnaráðs og gerir ekki athugasemdir við drög að "Yfirlit siglingaverndar á Íslandi 2023".