Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Landsþing sambandsins

Málsnúmer 202208128

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1036. fundur - 01.09.2022

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 26. ágúst 2022, þar sem fram kemur að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum 26. ágúst sl. dagskrá landsþings sem haldið verður í menningarhúsinu Hofi á Akureyri 28. - 30. september nk. Yfirskriftin er GRUNNUR AÐ GÓÐU SAMFÉLAGI. Dagskráin er kynnt í ofangreindum rafpósti.
Lagt fram til kynningar.