Frá Valdísi Guðbrandsdóttur; Fjárhagsáætlun 2023; tillaga um eyrnamerkta fjármuni - starfsfólk- starfsánægja

Málsnúmer 202206075

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1030. fundur - 23.06.2022

Tekið fyrir erindi frá Valdísi Guðbrandsdóttur, starfsmanni við Dalvíkurskóla, móttekið 19. júní sl., þar sem Valdís óskar eftir að tekið verði til umræðu að setja inn í fjárhagsáætlun 2023 lið fyrir hverja deild/stofnun sveitarfélagsins sem hljóðar upp á kr. 10.000 á hvern starfsmann, sama í hvaða starfshlutfalli hann er, til þess stjórnendur geti gert eitthvað fyrir starfsfólkið sitt til að auka starfsánægju og starfsanda.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að hafa erindið til hliðsjónar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026.

Byggðaráð - 1043. fundur - 19.10.2022

Á 1030. fundi byggðaráðs þann 23. júní sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Valdísi Guðbrandsdóttur, starfsmanni við Dalvíkurskóla, móttekið 19. júní sl., þar sem Valdís óskar eftir að tekið verði til umræðu að setja inn í fjárhagsáætlun 2023 lið fyrir hverja deild/stofnun sveitarfélagsins sem hljóðar upp á kr. 10.000 á hvern starfsmann, sama í hvaða starfshlutfalli hann er, til þess stjórnendur geti gert eitthvað fyrir starfsfólkið sitt til að auka starfsánægju og starfsanda.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að hafa erindið til hliðsjónar vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026."
Byggðaráð þakkar Valdísi fyrir erindið.
Byggðaráð sér sér ekki fært að fara þá leið sem bréfritari leggur til. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir um 6,0 m.kr. vegna miðlægra mannauðstengdra verkefna.