Tillaga um frestun funda sveitarstjórna samkvæmt 8. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 408/2022.

Málsnúmer 202205181

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 347. fundur - 28.06.2022

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi eftirfarandi tillaga frá forseta sveitarstjórnar, dagsett þann 24. júní 2022:
"Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2022. Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 32. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 29. júní 2022 til og með 31. ágúst 2022"
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um sumarleyfi sveitarstjórnar.