Hjólasöfnun 2022

Málsnúmer 202203112

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 257. fundur - 05.04.2022

Tekinn fyrir rafpóstur dags. 03.03.2022 frá Barnaheill. Hjólasöfnun Barnaheilla hófst með formlegum hætti þann 1. mars sl. Er um að ræða ellefta skiptið sem söfnunin fer fram og hefur verið gott samstarf við félagsþjónustur landsins og hjálparsamtaka sem hafa úthlutað í kringum 3.000 reiðhjólum til barna og ungmenna sem ekki hafa tök á að eignast hjól með öðrum hætti.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum félagsmálasviðs að taka þátt í verkefninu.