Frá Sýslumanninum umsagnarbeiðni; Umsókn um rekstrarleyfi - Vellir Svarfaðardal

Málsnúmer 202107044

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 992. fundur - 29.07.2021

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 15. júlí 2021. Óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir Hf Vellir ehf. veitingaleyfi-E Kaffihús.

Óskað er eftir að umsögn berist við fyrsta hentugleika eða eigi síðar en 45 dögum eftir móttöku beiðninnar.

Fyrir liggja umsagnir slökkviliðsstjóra án athugasemda og skipulagsfulltrúa f.h. byggingarfulltrúa með fyrirvara um skil á gögnum.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi sé veitt með sama fyrirvara og getið er um í umsögn byggingarfulltrúa.