Hólavegur 6, heilsugæslustöð - Tilkynning um framkvæmdir

Málsnúmer 202105028

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 352. fundur - 07.05.2021

Með erindi dagsettu 4. janúar 2021 tilkynnir Svava Bragadóttir fyrir hönd Ríkiseigna um framkvæmdir við viðhald á þaki Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, Hólavegi 6. Um minniháttar útlitsbreytingu er að ræða þar sem sagað er ofan af steyptum þakköntum og þakið framlengt yfir kantinn.
Lagt fram til kynningar.