Hreinsun holræsa og tæming rotþróa, verðkönnun 2021

Málsnúmer 202104111

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 104. fundur - 14.05.2021

Sviðsstjóri gerði verðkönnun vegna hreinsunar holræsa og tæmingu rotþróa í Dalvíkurbyggð. Tveimur verktökum var gefinn kostur á að bjóða í verkefnið en þeir voru Hreinsitækni hf. og Verkval hf. Upplýsingar um niðurstöðu verðkönnunarinnar er undir málinu og þar kemur fram að hagkvæmara sé að gera samning við Hreinsitækni um verkefnið.
Lagt fram til kynningar.