Fundaröð atvinnumála- og kynningarráðs

Málsnúmer 202103011

Vakta málsnúmer

Atvinnumála- og kynningarráð - 61. fundur - 03.03.2021

Þjónustu- og upplýsingafulltrúi upplýsti ráðið um stöðu mála hvað varðar ör-ráðstefnu ráðsins í febrúar/mars.
Í samstarfi við SSNE er stefnan sett á að halda ráðstefnuna þann 23. mars nk.
Þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að halda áfram vinnu við undirbúninginn og auglýsa næstu ör-ráðstefnu.

Atvinnumála- og kynningarráð - 62. fundur - 15.04.2021

Þann 23. mars sl. hélt Dalvíkurbyggð fjarfund með aðstoð SSNE sem bar heitið Er Dalvíkurbyggð að leita að þér?

Farið var yfir möguleika í atvinnulífinu og niðurstöður íbúakönnunar sem lögð var fyrir íbúa um allt landið.

Hugmynd að þema fyrir næsta fund ráðsins ræddar ásamt mögulegri tímasetningu.
Lagt fram til kynningar