Frá Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa; Áskorun v. íslensk netverslun og bein sala á framleiðslustað

Málsnúmer 202009094

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 955. fundur - 17.09.2020

Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 14. september 2020, frá Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa, þar sem kynnt er áskorun á ráðherra, þingmen og sveitarstjórnarfólk. Samtökin skora á ráðherra að leggja frumvarp sitt um að heimila íslenska netverslun með áfengi til jafns við erlenda fram á nýjan leik og tryggja á sama tíma möguleika handverksbrugghúsa til að selja gestum vörur sínar með beinum hætti á framleiðslustað.

Með breytingunum mætti standa vörð um afkomu frumkvöðlafyrirtækja og tugi starfa í öllum landshlutum á erfiðum tímum, auk þess að ýta undir framleiðslu á íslenskum gæðavörum og minnka kolefnisspor hinna seldu vara svo um munar.

Lagt fram til kynningar.