Umsókn um búfjárhald

Málsnúmer 202006033

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 133. fundur - 10.06.2020

Með innsendu erindi dags. 28. maí 2020 óskar Þórhallur S Jónsson eftir búfjárleyfi fyrir 10 hænur og tvær kanínur að Karlsbraut 18 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Landbúnaðarráð hafnar umsókn fyrir 10 hænur þar sem þegar hefur verið veitt leyfi fyrir allt að fimm hænum við Karlsbraut 18.
Ráðið gefur leyfi fyrir tveimur kanínum.
Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um velferð dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.