Umsókn um búfjárleyfi

Málsnúmer 202006026

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 133. fundur - 10.06.2020

Með innsendu erindi dags. 28. maí 2020 óskar Þuríður Kristín Sigurvinsdóttir eftir búfjárleyfi fyrir fimm hænur að Karlsbraut 18, Dalvík.
Jafnframt er óskað eftir að gildandi búfjárleyfi Benedikts Snæs falli niður.
Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina fyrir allt að fimm hænur, en bendir á að hanar eru með öllu bannaðir í þéttbýli. Jafnframt er fellt úr gildi áður útgefið leyfi fyrir Benedikt Snæ Magnússon á sömu lóð.
Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um velferð dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.