Erindi fyrir hönd eigenda Skógarhóla 29 a,b,c og d.

Málsnúmer 202005108

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 338. fundur - 12.06.2020

Með innsendu erindi dags. 15. maí 2020 óskar Anna Lísa Stefánsdóttir fyrir hönd eigenda að Skógarhólum 29 a,b,c og d eftir upplýsingum vegna göngustígs norðan og austan við raðhúsin.
Aðkoma norðan Skógahóla 29 er innan lóðarmarka umrædds húss og því ekki á ábyrgð sveitarfélagsins. Hvað varðar göngustíginn austan við húsið þá verður hann malbikaður í sumar.