Jafnréttisáætlanir sveitarfélaga

Málsnúmer 201910159

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 927. fundur - 21.11.2019

Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 30. október 2019, kynning á bréfi frá Jafnréttisstofu um jafnréttisáætlanir sveitarfélaga.

Erindið er sent til allra sveitarfélaga ásamt hvatningu um að þau setji sér jafnréttisáætlun.

Fram kemur að Dalvíkurbyggð er í hópi þeirra 19 sveitarfélaga sem nú þegar hafa skilað fullgildum jafnréttisáætlunum.
Lagt fram til kynningar.