Endurnýjun á samstarfssamningi.

Málsnúmer 201910143

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 926. fundur - 24.10.2019

Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett 23. október 2019. Þar sem samningur Markaðsstofunnar við sveitarfélagið rennur út nú um áramót er þess farið á leit að samningurinn verði endurnýjaður til tveggja ára eða til ársloka 2021.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga frá samningi við Markaðsstofu Norðurlands til tveggja ára eða til ársloka 2021.