Fundarboð - aukaaðalfundur AFE 18. nóvember nk.

Málsnúmer 201910134

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 926. fundur - 24.10.2019

Tekinn fyrir rafpóstur frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, dagsettur 21. október 2019, fundarboð á aukaaðalfund félagsins sem verður haldinn mánudaginn 18. nóvember nk. í Dalvíkurbyggð.

Á dagskrá aukaaðalfundarins er tillaga stjórnar um flutning á starfsemi félagsins yfir í nýtt félag, sbr. niðurstöðu aðalfundar Eyþings sem haldinn verður þann 15. nóvember nk. Einnig umræða um næstu skref varðandi Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar.

Til umræðu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri fari með umboð Dalvíkurbyggðar á aukaaðalfundi AFE þann 15. nóvember nk.