Frá Málræktarsjóði; Aðalfundur 2019

Málsnúmer 201905023

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 906. fundur - 09.05.2019

Tekinn fyrir rafpóstur frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðsins, dagsettur þann 6. maí 2019, þar sem fram kemur að aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn föstudaginn 7. júní kl. 15.30 á Hótel Sögu. Samkvæmt skipulagsskrá eiga samtök, fyrirtæki og stofnanir, sem lögðu sjóðnum til fé fyrir árslok 1992, rétt á að tilnefna einn mann í fulltrúaráðið. Dalvíkurbyggð hefur þennan rétt en átti ekki fulltrúa á síðasta fundi. Tilnefningar fyrir aðalfundinn 2019 þurfa að berast framkvæmdastjóra í tölvupósti eigi síðar en 27. maí nk. ásamt netfangi þess sem tilnefndur er.

Lagt fram til kynningar.