Göngur og réttir í Dalvíkurbyggð 2019

Málsnúmer 201904121

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 127. fundur - 02.05.2019

Til umræðu ákvörðun um fjallskil og göngur haustið 2019.
Samkvæmt fyrri samþykktum og skoðanakönnunum er gert ráð fyrir að fyrstu göngur í Svarfaðardalsdeild, Dalvíkurdeild og Árskógsdeild verði aðra helgi í september sem er 6.-8. og seinni göngur í öllum deildum viku síðar sem er 13.-15.
Hrossasmölun og eftirleit í Skíðadalsafréttum sem er Holarafrétt, Sveinsstaðarafrétt og Kóngsstaðardalur verði fyrstu helgina í október sem er 4.-5.

Samþykkt með fimm atkvæðum.