Frá Sólrúnu ehf.; Ingibjörg EA 351 skipaskrárnúmer 7362 - forkaupsréttur sveitarfélags

Málsnúmer 201903039

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 900. fundur - 14.03.2019

Tekið fyrir erindi frá Sólrúnu ehf., dagsett þann 7. mars 2019, þar sem Dalvíkurbyggð er boðinn forkaupsréttur að fiskiskipinu Ingibjörgu EA-351, skipaskrárnúmer 7362, í samræmi við 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð mun ekki nýta forkaupsrétt sveitarfélagsins á fiskiskipinu Ingibjörgu EA-351, skipaskrárnúmer 7362, og leggur til við sveitarstjórn að Dalvíkurbyggð falli frá forkaupsrétti.