Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi, 184. mál.

Málsnúmer 201902166

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 899. fundur - 07.03.2019

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 27. febrúar 2019, þar sem fram kemur að Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi,184. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13. mars nk.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.