Frá Forsætisráðuneytinu; Upplýsingar um tekjur af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna fyrir árið 2018

Málsnúmer 201901065

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 894. fundur - 24.01.2019

Tekinn fyrir rafpóstur frá Forsætisráðuneytinu, dagsettur þann 18. janúar 2019, þar sem óskað er eftir upplýsingum um þær tekjur sem Dalvíkurbyggð hafði á árinu 2018 fyrir nýtingu á landi og landsréttindum innan þjóðlendna. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um ráðstöfun tekna af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna, þ.e. í hvaða verkefni tekjurnar voru notaðar í. Óskað er eftir svörum eigi síðar en 16. febrúar n.k.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela umhverfis- og tæknisviði að svara ofangreindu erindi.